3. júlí 2009

10 ástæður fyrir samþykki Icesave

1. Það var á ábyrgð FME og stjórnvalda á Íslandi að takmarka áhættu þjóðarinnar af bankaútrásinni. Innlendar stofnanir brugðust. Ábyrgðin lá fyrir.

2. Með því að bjarga andliti evrópska fjármálaheimsins fær landið velvilja erlendis.

3. Ef Ísland ræður við samninginn er hann nærtækasta leiðin út úr vandanum. Og getur orðið harla auðveld ef mikið fæst fyrir eignir Landsbankans.

4. Ef ESB og AGS ákveða að fara í hart formlega eða óformlega getur ástandið á Íslandi snarversnað.

5. Trúverðuleiki þjóðarinnar er að veði.

6.

7.

8.

9.

10.

Fleiri röksemdir óskast.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ef málið verður ekki klárað fyrir október fellur öll skuldbindingin á Ísland nú þegar en ekki eftir 7 ár eins og samningurinn segir til um.

Stefán Pálsson sagði...

já... söfnum í púkk:

* Eftir sjö ár verða komnir nýir pólitíkusar hér heima sem og í Bretlandi og Hollandi. Farið verður að fenna yfir hörmungarsögurnar af bresku líknarfélögunum og hollensku bæjunum sem fóru á hausinn - auk þess sem Íslendingar verða kannski búnir að draga a.m.k. 1-2 bankagúbba fyrir dómara. Ef planið er að höfða til meðaumkunar umheimsins gæti verið betra að bíða í lengstu lög...