19. mars 2008

Broslegt

Hér eru örfáar ábendingaskilgreiningar fyrir broslegt.

Dómarinn í máli Heather Mills (sem breska pressan kallar nú Pornocchio) gegn Paul McCartney afsakaði lygar hennar með orðunum*:

The wife for her part must have felt rather swept off her feet by a man as famous as the husband

Tveir menn með Asperger-heilkenni rifust um tæknileg atriði á bloggi sem endaði á því að annar setti hinn í bann.

Stjórnmálamaður sem grunaður hefur verið um að vera í miður góðu andlegu jafnvægi staðfestir þann grun.

Sjónvarpsstjóri Ómega lenti í ótrúlegum hafvillum þegar hann reyndi að segja söguna af Nebúkadnesari og gat ekki í eitt skipti borið nafnið rétt fram, auk þess lagði hann ítrekað áherslu á töluna 3 með því að halda uppi fjórum fingrum.

(*Efnisgrein 54 í úrskurðinum.)

Engin ummæli: