5. júní 2008

En þetta er bara mín trú

Nýlega reyndi guðfræðinemi að færa rök fyrir því hér á þessum vettvangi að fullorðið fólk, t.a.m. í ummönnunarstéttum, ætti að vera hreinskiptið í samræðum við börn um álitamál eins og trúmál. Ef barn spyrði kristinn kennara spurningar á borð við: „Hvar er mamma þín?“ þá væri hreinlega eðlilegt að svara: „Hún er hjá Guði“ svo lengi sem sá varnagli fylgdi að einhver gæti verið annarrar skoðunar. Þannig lærði barnið smám saman að kennarinn héldi mömmu sína vera hjá Guði, Abdullah í 5.G héldi hana hjá Skrattanum og Ella náttúrufræðikennari fullyrti að hún væri hjá ormunum. Með þessu móti myndi barnið vera eggjað til að taka eigin afstöðu sjálfstætt og eðlilega.


Þetta er auðvitað galin skoðun. Kennarar, foreldrar og jafnvel þýðendur barnaefnis eru í innrætingarhlutverki gagnvart börnum. Þessu innrætingarhlutverki fylgir sú skylda að gera barnið fært um að taka sjálft afstöðu til álitamála. Meginatriði í því að taka afstöðu, hvort sem um barn eða fullorðinn er að ræða, er að skilja málefnið sjálft og þá þarf að hreinsa burt alla þá þætti sem þvælast bara fyrir og byrgja sýn. Það eru einmitt þættir eins og hefðir, saga, bábiljur og, síðast en alls ekki síst, persónur þeirra sem málefninu tengjast.


Það er óhugguleg sálnaásælni sem vakir fyrir guðfræðinemanum sem vill eiga einlæg samtöl við smábörn um Guð og blanda persónu sinni þar inn í. Þau rök sem tíunduð eru ti (að annars tali barnið bara við einhvern annan, t.d. önnur börn) eru svo ómerkileg að þau þarf ekki að virða með svari. Skoðanir einstakra fullorðinna á álitamálum eiga ekkert erindi við börn. Það skiptir hér ekki meginmáli hvort skoðunin lýtur að eilífðarmálum eða öðrum eldfimum málum. Kennari sem trúir börnum fyrir því að sér finnist komið alveg nóg af Pólverjum til landsins er siðblindur, alveg eins og sá sem fullyrðir að það sé hans persónuleg sannfæring að börn sem sprengi sig í loft upp við landamærastöðvar fari í góða staðinn og kalli blessun yfir fjölskyldur sínar. Hér skiptir engu þótt skoðunin sé smurð í bak og fyrir með fyrirvörum og varnöglum.


Fólk sem hefur svo róttæka afstöðu í álitamálum að því líður illa að þurfa að sitja á henni innan um börn er hreinlega ófært til að umgangast börn í starfi sínu. Það á að finna sér aðra vinnu.

3 ummæli:

Teitur Atlason sagði...

Glæsileg grein.
Þetta hitt í markið hjá mér:

Meginatriði í því að taka afstöðu, hvort sem um barn eða fullorðinn er að ræða, er að skilja málefnið sjálft og þá þarf að hreinsa burt alla þá þætti sem þvælast bara fyrir og byrgja sýn. Það eru einmitt þættir eins og hefðir, saga, bábyljur og, síðast en alls ekki síst, persónur þeirra sem málefninu tengjast.

oskar@fjarhitun.is sagði...

Já, mikið er rosalega ég ánægður með þennan bakþanka, Óli!

Ég bara get ekki skilið hvernig guðfræðineminn (hehe) gat verið svona fyndinn hér um árið og þróast yfir í þessa vælandi kéllingu.

Nafnlaus sagði...

Og ég sem var farinn að hlakka til þess að sjá Salmann Tamimi predika Íslam í barnaskólum þessa lands.