tag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post798083505568463317..comments2023-11-02T10:39:39.238+00:00Comments on Maurildi: Að kaupa belg undir gamalt vínÓli Sindrihttp://www.blogger.com/profile/13487208976347707296noreply@blogger.comBlogger10125tag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-78662828580996000802012-12-14T17:04:08.684+00:002012-12-14T17:04:08.684+00:00Áhugavert, Guðlaugur.
Hvernig tóku kennsluaðferði...Áhugavert, Guðlaugur.

Hvernig tóku kennsluaðferðir/námsaðferðir mið af mismunandi námsaðstæðum nemenda?Ragnar Þór Péturssonhttps://www.blogger.com/profile/07733440370464156299noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-73830578733750913332012-12-14T16:53:32.334+00:002012-12-14T16:53:32.334+00:00Gerði tilraun fyrir nokkrum misserum með tvo hópa ...Gerði tilraun fyrir nokkrum misserum með tvo hópa sem áttu að læra um rökrásir og talnakerfi. Báðir hópar innihéldu 10 nemendur. Einn hópurinn var í tölvustofu og hinn hópurinn í tölvulausri stofu. Í tölvustofunni var 40% fall og meðaleinkunn 6 en í tölvulausu stofunni náðu allir og meðaleinkunn 8,5. Eftir þessa reynslu kenni ég þessa grein alltaf í tölvulausri stofu og meðaleinkunn helst um 8 og fall undir 5%. Hvet þó nemendur í þessari grein til að nota tölvur sínar - en alls ekki í kennslustund :-) Guðlaugur Kristinn Óttarsson, prófessor í rafeindatækni og tölvuvísindum.Anonymoushttps://www.blogger.com/profile/00220980041666365929noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-36552010455667154942012-12-13T16:06:17.215+00:002012-12-13T16:06:17.215+00:00Harpa, ég hef grun um að okkur greini í grunninn e...Harpa, ég hef grun um að okkur greini í grunninn ekki svo mikið á um aðalatriði. Það verður gaman að sjá hvernig þú tekur á námsmatspistlinum þegar hann kemur.Ragnar Þór Péturssonhttps://www.blogger.com/profile/07733440370464156299noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-37717377387732081162012-12-13T15:31:41.911+00:002012-12-13T15:31:41.911+00:00Það er mikið til í því, Anna. Að mínu mati er óver...Það er mikið til í því, Anna. Að mínu mati er óverjandi að framleiða flashefni í dag í stað html5 t.a.m.

En hér þurfa skólar að skapa þrýsting. Án hans er kyrrstaða og nams hefur lent í því áður að ætla að leiða tækniþróun og uppgötvað að þar enduðu menn einir úti á sléttu.Ragnar Þór Péturssonhttps://www.blogger.com/profile/07733440370464156299noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-36357374878116114782012-12-13T15:25:01.053+00:002012-12-13T15:25:01.053+00:00Sæll Ragnar Þór
Er ekki aðal málið í sambandi við...Sæll Ragnar Þór

Er ekki aðal málið í sambandi við grunnskólana og Flashið að Námsgagnastofunin framleiðir enn næstum allt sitt gagnvirka efni í Flash? Það eru jú þau sem framleiða gagnvirk efni sem styðja við námsbækurnar sem skólarnir eru að nota. HTML5 er klárlega það sem þau eiga að vera að vinna með, en mér skyldst að það sé bara ekki þannig. Umræðan um að Flashið sé á útleið er ekkert ný af nálinni og því hefur það verið nokkuð fyrirsjáanlegt í langan tíma að þetta yrði staðan einn daginn en samt hefur stofnuninn valið að treysta á það form.

kv.
Anna María
Anna Mariahttps://www.blogger.com/profile/14502532281757287395noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-25355165849265461582012-12-13T15:15:00.120+00:002012-12-13T15:15:00.120+00:00Það má draga af þessari sögu þá ályktun að Google ...Það má draga af þessari sögu þá ályktun að Google sé mjög heppilegt svindlverkfæri ;) Sem ég held að nemendum og kennurum sé ágætlega ljóst.

Við erum líklega ósammála um hve grunnþekking skipti miklu máli í nútímanum. Ég álít að traust undirstöðuþekking í Snorra-Eddu skipti miklu máli til að fólk skilji tal og texta með tilvísunum, frá bókmenntatextum upp í greinar á netmiðlum eða ræður. Gúgulþekking er ætíð brotakennd. Með sömu rökum mætti halda fram að kennsla í reikningi sé alger óþarfi því á Gúgul megi finna prýðis reiknivél: Af hverju á þá að kenna nemendum að leggja saman, draga frá eða læra margföldunartöfluna utan að?

Stóra spurning er: Telst sá sem einungis kann að nota Google til að afla sér þekkingar menntaður maður eða felst eitthvað annað í hugtakinu menntun?

Krossapróf, eins og þú lýsir, er einungis eitt af mörgum mælitækjum sem nota má til að mæla námsárangur og það er takmarkaður mælikvarði (raunar finnst mér dálítið undarlegt að leggja fyrir krossapróf og leyfa aðgang að "allthvaðeina" á netinu - til hvers er þá krossaprófið?).

Hlakka til að lesa færsluna þína um námsárangur. Mér finnst frábært að lesa færslurnar þínar um skólamál, þær eru málefnalegar og vel rökstuddar. Og ég hef lítinn áhuga á að lesa eftir þá sem eru mér sammála ... hver nennir að lifa í eilífum jákór?
Harpa Hreinsdóttirhttp://fva.is/harpanoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-72245504269973532872012-12-13T14:40:11.637+00:002012-12-13T14:40:11.637+00:00Ég er með í salti færslu um þetta með námsáranguri...Ég er með í salti færslu um þetta með námsárangurinn, Harpa. Hún er hálfnuð en dettur inn næst þegar andagiftin kíkir inn. Þetta er mikilvægur punktur – og ég held misskilinn.

Aðeins eitt lítið dæmi,

ég gerði um daginn smá tilraun. Manneskja sem ég þekki var að taka netpróf í íslenskuáfanga í framhaldsskóla, ef hún fengi yfir 80% myndi hún sleppa við lokapróf. Þetta voru aðallega krossaspurningar en nokkrar opnar. Efnið var Snorra-Edda.

Hún mátti nota glósur úr tímum og allthvaðeina.

Nema hvað, þegar prófið hófst tengdist ég tölvu hennar með Join me og ég sá því framvindu hennar og prófspurningarnar, án þess þó að geta haft áhrif á niðurstöðurnar.

Það sem ég gerði var að athuga hvort ég gæti, ólesinn í efninu með ekkert nema almenna þekkingu á Snorra-Eddu gúglað svörin við spurningunum innan þess tíma sem í boði var.

Prófið var 90 mínútur.

Eftir 20 mínútur hafði ég fundið öll svörin með gúgli, auk þess að finna tvær villur í spurningunum.

Hvað má álykta af slíku námsmati?Ragnar Þór Péturssonhttps://www.blogger.com/profile/07733440370464156299noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-67786793531730801722012-12-13T14:28:11.825+00:002012-12-13T14:28:11.825+00:00Ég tek eftir því núna þegar ég skoða kennsluáætlan...Ég tek eftir því núna þegar ég skoða kennsluáætlanir í mínu fagi í mínum skóla að sumir kennarar banna notkun tölva og síma nema í verkefnavinnu undir stjórn kennara. Nú þekki ég þessa kennara að góðu einu og reikna því með að eitthvert vandamál hljóti að vera til staðar úr því þeir kjósa að taka þetta fram á kennsluáætlun; Eitthvert vandamál sem ekki var áberandi fyrir þremur árum, þegar ég kenndi síðast. Ég er að velta fyrir mér núna hvort ég ætti að setja þetta í kennsluáætlun þá sem ég er að fara að semja ... líklega geri ég það því ég tek mark á akkúrat þessum kennurum.

Það er náttúrlega út í hött að líkja saman netinu og bókasafni, jafnvel þótt Elskhugi Lady Chatterly sé dreginn fram :)

Ég byrjaði að nota tölvur markvisst í kennslu í kringum 1988, stóð þá fyrir tilraunaverkefni í Ritsmiðju, að danskri fyrirmynd - skriveværksted kölluðu frændur okkar þetta - sá nýverið grein eftir kennara á Menntavísindasviði um akkúrat samskonar, sem hann taldi glænýja hugmynd ;)

Vefinn byrjaði ég að brúka í kennslu um svipað leyti og hann varð aðgengilegur á Íslandi, elstu vefsíðuverkefni nemenda minna eru frá árinu 1995.

Og ég komst að þeirri niðurstöðu laust eftir 2000 að það skilaði betri námsárangri að kennari brúkaði kjaftinn og krítina frekar en upplýsingatækni ;)

Kannski verður árið 2013 upplagt ár til að skipta aftur um skoðun?Harpa Hreinsdóttirhttp://fva.is/harpanoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-34521087384969578072012-12-13T13:59:13.556+00:002012-12-13T13:59:13.556+00:00Ég held að meira og minna allir skólar á Íslandi n...Ég held að meira og minna allir skólar á Íslandi noti netsíur sem hreinsa burt klám og annan óþverra upp að verulegu marki. Það litla sem eftir er er álíka relevant spurning og hvort menn vilji virkilega taka áhættuna á því að nemendur limlesti hverja aðra með hnífum eða að börn geti lesið Elskhuga lafði Chatterley.

Um hið síðarnefnda. Spjaldtölvur geta vissulega breytt birtingarmynd þess þegar nemendur eru í „öðru en námsefninu“ heilu stundirnar. En þú veist jafn vel og ég að þeir eru ekki fáir sem stunda það nú þegar án hjálpar tækninnar.

Annars er besta leiðin hér að nemendur geri vinnuáætlanir og kennarar skoði verkefni og vinnuskil. Ef þau eru í lagi þá er svo sannarlega í góðu lagi þótt nemandi detti í feisbúkk eða angry birds af og til – alveg eins og við hin gerum.Ragnar Þór Péturssonhttps://www.blogger.com/profile/07733440370464156299noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-83468724563285991422012-12-13T13:49:19.703+00:002012-12-13T13:49:19.703+00:00Er framhaldsskólakennari og vil þakka þér fyrir gó...Er framhaldsskólakennari og vil þakka þér fyrir góða pistla.

Þú berð saman frjálsan aðgang nemenda að internetinu í tölvunum og að bókasafni. Hvað ef í bókasafninu væri spilavíti í einu horninu, klámmyndasýning í næsta horni og facebook alls staðar? Ég kenni Utn þar sem nemendur eru nettengdir og hef ég þurft að vera uppáfyndingarsöm í kennsluaðferðum.

Ég hef enn enga umræðu séð um aðferðir til að halda nemendum frá því að vera allar kennslustundir í allt öðru en námsefninu.

kv. Margrét (gekk ekki að skrá mig inn með Google)Anonymousnoreply@blogger.com