tag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post672317844123738084..comments2023-11-02T10:39:39.238+00:00Comments on Maurildi: Atburðarásin óumflýjanlega?Óli Sindrihttp://www.blogger.com/profile/13487208976347707296noreply@blogger.comBlogger2125tag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-89646782626721384732012-02-14T22:27:40.563+00:002012-02-14T22:27:40.563+00:00Sammála því að með því að úthýsa trúnni úr grunnsk...Sammála því að með því að úthýsa trúnni úr grunnskólum sveitarfélaganna aukast líkurnar á því að kristnir, múslimar osfv. setji börnin sín í einkaskóla þar sem trúariðkun fær svigrúm.

Ósammála öðru.

Til dæmis því hvernig þú setur myndskreytir bloggið með myndum af Snorra í Betel og Georg Bush, svona rétt eins og þessir menn hafi eitthvað að gera með trúmál á Íslandi. Þessir menn hafa allt annan skilning á kristni en meginþorri Vestur-Evrópubúa. Blogg-færslan tekur heldur ekki tillit til þess að kristnar kirkjudeildir eru með eindæmum margbreytilegar og lífsgildi kristinna spanna allt siðferðilega og pólitíska litrofið. Það er allt of algengt í umræðu hér á landi, finnst mér, að spyrða saman kirkjudeildir sem eiga ekkert sameiginlegt nema trúarjátninguna. Þjóðkirkjan á Íslandi á þannig mjög lítið sameiginlegt með baptista söfnuðum, svo dæmi sé tekið, þar á meðal Betel.
Til að gera málið enn "litríkara" mætti benda á að skoðannir á siðferðilegum efnum eru mjög skiptar innan Þjóðkirkjunnar svo ekki sé talað um stjórnmálaskoðannir. Það er enginn ein lína í þeim efnum.
Annað til umhugsunar. Þú segir:
"Börn frjálslyndra fá oft á tíðum enga innrætingu eða litla á meðan börn róttækra fá ótruflaða og látlausa innrætingu."
Þetta er gildishlaðið með eindæmum. Öll erum við stöðugt innrætt, hvort sem við komum úr "trúuðu" umhverfi eða ekki. Það er stöðugt verið að innræta mennskunni í okkur öllum, í öllum sínum fjölbreytileika, til góðs og ills.

Ég er afturámóti alveg sammála þér að trúmal eigi ekki heima í skólum sem sveitafélögin eða ríkið reka. Það gengur ekki á tímum fjölmenningar. Ég er líka sammála þér um að það leiði til þess að fólk sendi börnin sín frekar í einkaskóla. Það myndi ég gera ef ég ætti börn á grunnskólaaldri. (Í þeim skóla væri EKKI kennt að samkynhneigð væri synd og best væri ef þú værir fáanlegur til að kenna gagnrýna hugsun.)

Ég verð að lokum að viðurkenna að þessi óumflýjanlega þróun særir mitt gamla sósíaldemókratíska hjarta.

Ég tek semsagt ekki veðmálinu.Ólafur Tryggvinoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-42176903432183779482012-02-14T18:56:31.303+00:002012-02-14T18:56:31.303+00:00Ég veðja hálfri milljón. Verðtryggt til fimm ára.Ég veðja hálfri milljón. Verðtryggt til fimm ára.Bjössihttps://www.blogger.com/profile/13896240769382122067noreply@blogger.com