tag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post633363473540355940..comments2023-11-02T10:39:39.238+00:00Comments on Maurildi: Iðnaðarsalt og andvísindinÓli Sindrihttp://www.blogger.com/profile/13487208976347707296noreply@blogger.comBlogger14125tag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-54317358387438191702012-01-17T10:05:10.016+00:002012-01-17T10:05:10.016+00:00Ó, ég hlæ (ég er svo létt!) Fyrningartími. Á sal...Ó, ég hlæ (ég er svo létt!) Fyrningartími. Á salti!
Jæja, best að fara aftur til internetsins.Kristján Valurhttps://www.blogger.com/profile/17620642324264784004noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-48442557006811720772012-01-17T08:57:41.179+00:002012-01-17T08:57:41.179+00:00Það getur vel verið að innihaldið sé nákvæmlega sa...Það getur vel verið að innihaldið sé nákvæmlega sama og í salti sem ætlað er til manneldis. Það skiptir bara ekki máli, merkingar eru ekki réttar sem þýðir að þeir sem fluttu og geymdu saltið fóru ekki endilega með það eins og um matvæli væri að ræða. Geymsluskilyrðum var hugsanlega ábótavant og eitt sem ekki hefur komið fram: var einhver fyrningartími gefin upp á umbúðum og var hann þá ekki miðaður við þetta væri ekki notað í matvæli?Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-48985866599394655002012-01-16T22:46:42.779+00:002012-01-16T22:46:42.779+00:00En saltið stenst einmitt staðla til manneldis. Þa...En saltið stenst einmitt staðla til manneldis. Það er heila málið. Efnainnihald saltsins er vottað skv. iso 9001 staðlinum og það þýðir að hver sá sem ætlar að nota þetta salt getur treyst því að innihaldið fari ekki útfyrir uppgefin mörk. Þetta er til dæmis afar mikilvægt í iðnaði, þar sem frávik geta valdið því að allt fer úrskeiðis. Hitt er svo annað mál að það er ekki sérstaklega vottað til manneldis, en sjálfur veit ég ekki hvort gerðar eru um það kröfur per-se í Íslenskri matvælalöggjöf.

Ástæða þess að til er sérstakt iðnaðarsalt er einfaldlega sú, að hægt er að selja sama salt, vottað og stimplað sem matarsalt fyrir mikið hærra verð. Til aðgreiningar verður að kalla hitt saltið iðnaðarsalt og taka fram að það sé ekki sérstaklega ætlað til manneldis. Þetta er sama ástæða og sú sem er fyrir því að Toyota með möttu lakki er ódýrari en með sanseruðu lakki. Til að hægt sé að selja lúxusvöru dýrt, verður að vera til standardvara.Kristján Valurhttps://www.blogger.com/profile/17620642324264784004noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-5352091938127056112012-01-16T15:10:57.042+00:002012-01-16T15:10:57.042+00:00"Og tældi frændi þinn læknirinn þig til þess ..."Og tældi frændi þinn læknirinn þig til þess að nefna bólusetningar í sömu andrá og iðnaðarsalt. Hvað veist þú um hvort börn séu að "smitast" af einhverfu í kjölfar bólusetninga?"

Það eru MARGAR stórar rannsóknir sem sýna ekki tengingu milli einhverfu og bólusetninga, en EIN FÖLSUÐ OG GÖLLUÐ rannsókn sem gaf NÆSTUM því til kynna tengingu án þess að virkilega sýna orsakatengsl... Þessvegna þorir hann að drulla yfir þetta.

Saltið hinsvegar, nýlegar rannsóknir gefa til kynna að salt sé ekkert sérstaklega óhollt, og hafi ekki þessi hrikalegu áhrif á æðar og blóðþrýsting, nema hjá þeim sem eru þegar komnir með vandamál í sogæðakerfi. Semsagt: Ef maður er orðinn hjartasjúklingur þá þarf maður að fara varlega í mataræði...

Þetta mál með iðnaðarsaltið er alvöru mál, því að þetta sýnir að FYRIRTÆKI fái að gefa skít í staðla sem eru settir til þess að þau geti ekki keypt mun ódýrari og óvottuð hráefni sem ekki standast staðla til manneldis. Hér skiptir í raun engu þó að saltið sem um ræðir sé hugsanlega sauðmeinlaust. Fyrirtæki eru að svindla í stórum stíl, án tillits til öryggis neytenda. Fyrirtækin eiga í raun og veru að vera síðasti öryggisventillinn fyrir okkur (eftir allar stofnanir, vottanir og þ.h.), en sýna með sanni að svo er ekki.

Ölgerðin sýnir það að þeim er ekki treystandi. Nota þeir örugga matarliti í appelsínið sem þeir blanda? Nota þeir almennilega verkferla í bruggun bjórs? Er einhver sem fylgist með þeim?

Byggt á þessu saltmáli þá er svo ekki. Mér finnst ég ekki geta treyst ölgerðinni til að vinna eftir lögum. Og þessi álitshnekkur er alfarið byggður á þeirra eigin verkum.

(Nota bene að ég er EKKI að segja að það sé eitthvað vafasamt í vörum ölgerðarinnar, einungis að segja að verk þeirra varðandi innflutning á salti hafa rýrt traust mitt til fyrirtækisins).

Síðan komum við að óvottuðum heimabakstri. Þar eru flestöll hráefni keypt frá innflytjendum eða innlendum framleiðendum. Hráefnin eru semsagt upp til hópa vottuð. ég hef ENGAR áhyggjur af því að fá smá óvottuð söl, eða heimaframleiðslu þar sem ég SKIL hvernig þarf að vinna heima. Ég skil EKKI hverjar áhætturnar eru í verksmiðju (tengt gerlagróðri, t.d.) og þessvegna þarf vottun á framleiðslulínur. Hætturnar eru bara aðrar og meiri þar sem mörg tonn af kjöthakki renna í gegn og halda öllu bandinu blautu í tíu tíma samfleytt heldur en þar sem ein manneskja hnoðar saman nokkur kíló af kjötbollum. Bara allt annað dæmi. Og hún notar aðkeypt og vottað salt. Gerir stórframleiðandinn það? Á ég að þora að borða mat frá honum daglega?Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-62039804484411596842012-01-16T07:22:49.658+00:002012-01-16T07:22:49.658+00:00Sammála "ferlið brást í 13 ár.... " hér ...Sammála "ferlið brást í 13 ár.... " hér á undan. Vissulega er íslenskur neytandi illa upplýstur og lætur bjóða sér hvað sem er, tekur ekki ábyrgð á sjálfum sér og allt það. En, hver á að upplýsa neytandann? Á hann alltaf að Googla? Gagnrýni á fjölmiðla á Íslandi er alltaf hálf-máttlaus. Af hverju gera ekki fjölmiðlar úttekt á því hvað þetta þýðir með saltið og lýsir öllum þáttum þess og taka af allan vafa um skaðsemina? Af hverju?Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-28473431666245058722012-01-16T04:41:49.799+00:002012-01-16T04:41:49.799+00:00Ok, þetta slapp í þetta sinn.
En ferlið brást í 1...Ok, þetta slapp í þetta sinn.

En ferlið brást í 13 ár....

Það er alveg skiljanlegt að fólk sé svolítið í sjokki og fari að pæla í því að eitthvað annað og verra gæti líka þá hafa sloppið í gegnum ferlið?

Þó að þetta hafi farið vel í þetta skipti þá tryggir það ekki að þetta fari vel næst. Og það verður næst...Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-41872496434231710782012-01-16T01:44:22.589+00:002012-01-16T01:44:22.589+00:00Hver borgaði þér fyrir að skrifa þessa grein Ragna...Hver borgaði þér fyrir að skrifa þessa grein Ragnar? Mjólkursamsalan? Og tældi frændi þinn læknirinn þig til þess að nefna bólusetningar í sömu andrá og iðnaðarsalt. Hvað veist þú um hvort börn séu að "smitast" af einhverfu í kjölfar bólusetninga?
Afhverju yfir höfuð er saltið kallað iðnaðarsalt? Er það ekki málið? Kannske er það bara ætlað til matvælaiðnaðar en ekki í heima-kleinubakstur. Hver veit? Kannske er eini munurinn á þessu iðnaðarsalti og öðru salti verðið. Mér finnst þú dálítið naeve í þessum skrifum þínum hér.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-30912988368860959862012-01-16T01:21:45.702+00:002012-01-16T01:21:45.702+00:00Takk fyrir fróðlegan pistil. Ég verð nú samt að s...Takk fyrir fróðlegan pistil. Ég verð nú samt að segja að ég er ósammála þér.

Vissulega tekur þú fram að rangt sé að selja iðnaðarsalt til matvælaframleiðslu, en síðan kemur þú inn á að þetta salt hafi verið prófað.

Við erum með staðla því almenningur hefur ekki vitneskju eða getu til að fullvissa sig um að varan sé í lagi. Vottun segir okkur að varan uppfylli ákveðin lágmarksgæði.

Samkvæmt þínum pistli þá ertu að fara, þó varlega séð, inn á það að þar sem eftirlitsaðili tékkaði á þessu salti þá sé allt í góðu að selja það.

Ég spyr á móti, hversu vel var þetta tékkað? Var einn poki prófaður, nokkrir pokar af sömu pallettu? Voru margar prófanir á mismunandi tíma? Getur verið að salt sé misgott jafnvel úr sama fjalli?

Getur svona tékk hjá innlendu eftirliti, verið fordæmisgefandi gagnvart öðrum fyrirtækjum? Við verðum að vera meðvituð um meðalhófsreglu og jafnræðisreglu yfirvalda. Getur verið að handahófskennt tékk hér á landi geti verið gloppótt?

Það er engin tilviljun að við höfum vottanir. Ég geri ráð fyrir að til þess að salt fái vottun sem iðnaðarsalt sé mun auðveldara en að fá salt vottað sem matvælasalt.

Tökum annan vinkil á þessa umræðu. Hugsum okkur að meðaljónin sé að byggja hús. Hann veit ekkert um gæði sements, hann veit ekkert um járnabindingar. Því fær hann sér fagmann i verkið sem þarf að uppfylla ákveðna staðla. Á innlendur aðili að leyfa sement sem hefur ekki vottun, en reynist þó bara nokkuð gott?

Það að saltið sé ekki vottað er einfaldlega nóg til að taka það úr umferð, sem matvælasalt. Það er langöruggast. Og er söluaðila víti til varnaðar. Skýr skilaboð: ,,þú spilar ekki á reglurnar''.

Pétur,Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-4673743483976951962012-01-15T21:34:06.115+00:002012-01-15T21:34:06.115+00:00Mjög góð grein hjá þér. Það er sjaldgæft nú til da...Mjög góð grein hjá þér. Það er sjaldgæft nú til dags að rekast á vitræn skrif á Netinu. Rétt er hins vegar að benda á það að einn megin vandinn við þungmálma er ekki einungis hversu eitraðir þeir eru heldur hve langur helmingunartími þeirra getur verið. Til dæmis má nefna að helmiungunartími kadmíums er um 20 ár. Kadmíum safnast því fyrir í líkama manna og dýra þó neyslan sé í litlu magni í hvert sinn.Retnushttps://www.blogger.com/profile/17920208186135178786noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-78333402848304242702012-01-15T19:43:34.509+00:002012-01-15T19:43:34.509+00:00Ég heimta ekki að aðrir taki ábyrgð á mér. Ég heim...Ég heimta ekki að aðrir taki ábyrgð á mér. Ég heimta hinsvegar að þegar eftirlitsstofnun (sem ég bað ekki um) er starfandi þá taki hún ábyrgð á hlutverki sínu. Eftirlitsstofnun sem fylgir ekki reglunum er nefnilega einmitt dæmi um falskt öryggiEvahttp://pistillinn.isnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-65441040145497833192012-01-15T19:21:24.544+00:002012-01-15T19:21:24.544+00:00Fín grein en sú hugmynd að sætisbeltanotkun auki á...Fín grein en sú hugmynd að sætisbeltanotkun auki áhættuhegðun og valdi því slysum hefur meðal annars verið debunked hér: http://papers.ssrn.com/sol3/papers.cfm?abstract_id=293582

Menn virðast almennt nota sætisbelti meira þegar hættu steðjar að, sem bjó til false correlation í fyrri rannsóknum. En það gæti svosem þurft að endurtaka þetta á fleiri stöðum og með stærra úrtak til að ganga úr skugga um að Cohen og Einav séu á réttri braut.Gunnarhttp://www.google.comnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-2433594896901778362012-01-15T18:38:29.669+00:002012-01-15T18:38:29.669+00:00Vil nú setja athugasemd um að saltneysla sé almenn...Vil nú setja athugasemd um að saltneysla sé almennt slæm, en rannsóknir eru að sýna meir og meir fram á að lága saltneyslan sem er verið að ýta undir þessa dagana er í raun að valda meiri skaða en annað.

Líffræðingurinn Ray Peat hefur ákkúrat mjög góða ritgerð um saltneyslu og vitnar í rannsóknir sem benda að saltneysla sé fín, jafnvel í háum skömmtum.Til að mynda þá eykur saltneysla insulin sensitivity sem er eitthvað sem vantar hjá sykursjúkum.

http://raypeat.com/articles/articles/salt.shtml

Í raun myndi ég frekar íhuga hvort vandamálið sé gæði saltsins, en hið almenna borðsalt kallast varla salt miðað við draslið sem er sett í það. Okkur vantar long term studies til að sjá hver munurinn er á hreinu salti(eða sjávarsalti) og hinu hreinsaða borðsalti og hvort einhver munur er þar á.

Svo verður fólk bara að prófa sig áfram. Ég sjálf fór ekki að finna mun fyrr en ég fór að éta það sem kallast óhóflega mikið af salti(2-3 teskeiðar af sjávarsalti á dag). Alls konar dót byrjaði að hverfa eins og nýrnaverkir, bjúgur og verkir í vöðvum og það með því að éta það sem læknum blöskrar við. Jafnvel hormónalækninum mínum kom á óvart að ég var með engan bjúg þrátt fyrir þessa neyslu.Hulda Sifhttp://hugi.isnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-91389672253340351362012-01-15T17:25:50.786+00:002012-01-15T17:25:50.786+00:00Heilmikið til í þessu.
Nema reyndar var ég einmit...Heilmikið til í þessu.

Nema reyndar var ég einmitt að lesa að þetta með hvað of mikið salt í mat sé hættulegt hafi hreinlega aldrei verið rannsakað. Editorial í Journal of the American Medical Association: (samantekt Reader's Digest: "Some studies suggest that cutting salt protects the heart; others suggest that zealous salt reduction can actually icrease heart problems What's needed is a randomized, controlled trial, in which people are put on different diets and followed for years. It's the only way to get a reliable answer, but it's never been done."

http://www.foodpolitics.com/wp-content/uploads/JAMA-Na+-Restriction-2-2-10.pdfAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-82562568321800329392012-01-15T15:45:26.745+00:002012-01-15T15:45:26.745+00:00Flott grein hjá þér! Maður hefur heyrt um að verðm...Flott grein hjá þér! Maður hefur heyrt um að verðmyndun á kaffi, sem keypt er sérstaklega til að styðja við fátæka kaffibændur og vottað í bak og fyrir, sé þannig, að bóndinn fái mun minna í sinn hlut en vottunarstofan. Ég get hins vegar ekki bent á heimildir, en las það einhvers staðar, að 1% af því sem við greiðum fyrir þetta kaffi fari til bóndans, sem ræktar kaffirunnann og tínir baunirnar af honum.Anonymousnoreply@blogger.com