tag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post4727186879938083755..comments2023-11-02T10:39:39.238+00:00Comments on Maurildi: Siðareglur eru bullÓli Sindrihttp://www.blogger.com/profile/13487208976347707296noreply@blogger.comBlogger3125tag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-69485077525799797382012-06-29T23:56:59.217+00:002012-06-29T23:56:59.217+00:00Almáttugur hvað ég er sammála því sem þú segir hér...Almáttugur hvað ég er sammála því sem þú segir hér. Minnir mig á ágæta tilvitnun sem ég las einhvers staðar "Your beliefs don't make you a better person. Your behaviour does". Það sama má til sanns vegar færa um siðareglur.

Sigrún HjartardóttirAnonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-66214663833563314382012-06-19T11:46:18.645+00:002012-06-19T11:46:18.645+00:001. Eina raunhæfa leiðin til að hafa viðurlög við s...1. Eina raunhæfa leiðin til að hafa viðurlög við siðareglum er að hafa einhverskonar siðanefndir. Þar fer fram siðferðileg umræða og rökræða jafnvel. Það, að alvarleg siðferðisbrot hafi afleiðingar fyrir gerandann, vekur til umhugsunar þá sem stunda sömu störf. Það að hafa umræðuna opna og rannsaka siðferðið hefur áhrif á breytnina - þótt það sé ekki nema til þess að forðast viðurlög. Siðferðismál eru einfaldlega þannig að þau verða aldrei afgreidd með einföldum, algildum reglum. Þau verður alltaf á endanum að rannsaka af hugsandi, siðferðilegum manneskjum. Þær manneskjur verða að vera reiðubúnar til að skoða mál með opnum huga og viðurkenna að siðferðið er fullt af álitamálum. En þær veða líka að vera tilbúnar að fordæma og aðhafast í augljósum málum.

2. Íslendingar held ég hafa aldrei verið miklir siðferðisbógar. En þegar fólk sýslar með hagsmuni annarra vaknar dýpri siðferðileg skylda en þegar maður sér bara um sjálfan sig. Íslendingar hafa á síðasta áratug farið ægilega illa með hagsmuni annarra og virt að engu. Dæmi: menn sem plokkuðu sparifé af gömlu fólki til að nota í áhættufjárfestingar og til að fóðra sveltandi peningaskrímsli og gerðu það fyri fjárhagslegan ávinning. Fleiri dæmi: almenn vanvirðing fyrir öllu nema einfalt skilgreindum hagsmunum, óumburðarlyndi og ofstæki.

Kannski urðu tækifærin bara stærri.Ragnar Þór Péturssonhttps://www.blogger.com/profile/07733440370464156299noreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-3071136491482964016.post-37529470553850404522012-06-19T10:14:24.288+00:002012-06-19T10:14:24.288+00:00Ég held að sé rétt hjá þér að það sé töluverð hætt...Ég held að sé rétt hjá þér að það sé töluverð hætta á að siðareglur þjóni ekki tilgangi og að tilgangurinn með þeim sé oft sýndarmennska. Nokkrar athugasemdir samt:

Hvað hefurðu fyrir þér í því að viðurlög séu grundvöllur þess að reglum sé fylgt?
Hvað hefurðu fyrir þér í því að siðferði Íslendinga hafi sjaldan verið verra, er eitthvert tímabil Íslandssögunnar þar sem spilling og leynimakk hefur ekki þrifist?Eva Hauksdóttirhttp://pistillinn.isnoreply@blogger.com